Já dömur mínar og herrar ég er með vægast sagt, sjokkerandi fréttir.......
1) Ég er komin með hrukkur, já þið lásuð rétt ÞRJÁR HRUKKUR undir sitthvort augað, samtals SEX hrukkur, man hvað ég dobbúl tjekkaði í morgun í speglinum.
2) Beið næstum bana í Bónus í gær, þvílíkur var slagurinn í kælinum. Mjólkin á krónu og skyrdollan á 27 og ég varð að komast framhjá kælinum til að komast að afgreiðslukassanum og átti þar fótum mínum fjör að launa...... Keypti það helsta, blejur á 600 kall og 2 lítra af kók á 50, hélt ég væri á Spáni eitt augnablik.......
3) Og já það versta, ég er óhuggulega háð gemsanum mínum. Týndi honum í gær, gleymdi honum í bíl og kviss bamm búmm, ég vissi ekki hvað klukkan var, ég hafði ekki vekjaraklukku og barnapían gat ekki hringt heim til að láta vita að hún ætlaði að borða með okkur, því heimasímin er ónýtur, eða réttara sagt línan virkar ekki. MAGNAÐ. Svo ég fór að sofa kl átta til að eiga sjens á að vakna til vinnu og dreymdi afa Nóa í Bretlandi, sem leit út eins og sögupersóna í Harry Potter og var sko alls ekkert vel við mig heheheh.
Brjáluð stemning hjá mér!!
Luvvveee
H