Ég hugsa, akkúrat, thats mí...........

Hadda Hreiðarz.... sjís the vonn

28.11.2005 11:12:25 / hadda

Mánudagur...

Alltaf gaman að þeim:). Er að komast í ákveðinn jólafílíng, sem hefur afar sjaldan komið fyrir mig... Ég fíla það að sitja hérna í rökkrinu og fyrir utan er tré með jólaseríu sem lýsir upp skrifstofuna. Finnst líka alltaf einhver stemning að keyra fyrst niður Skólavörðustíginn þegar ég fer með Nóann á leikskólann og svo niður Laugarveginn og Lækjargötuna til að komast í vinnunna.

Ég setti ekki upp jólaseríurnar, reyndar er allt jólaskrautið mitt týntm buhu en ég lít að hafa ráð á eins og einni seríu fyrir jólin.

Helgin var róleg og skemmtileg, þrátt fyrir að ég hafi fengið það sterklega á tilfinninguna að ég sé feig í gær.... Skaðbrenndi mig brauðristinni, rak hausinn svakalega FAST í eldhússkápinn, brenndi mig aftur á brauðristinni 8 tímum síðar, datt á eldhúsgólfinu með frosinn kjúkling í fanginu og áfram mætti telja.... Meira að segja Hreiðar Nói var farinn að setja upp undrunarsvip...

Við fórum í göngutúr útá Gróttu í gær, HN var æstur að henda steinum í sjóinn og pabbinn æstur með nýtt leikfang  (ný myndavél), svo skoðuðum við jólaljósin og glataða jólatréð á Austurbakkanum...

Á laugardagskvöldið fór ég í Borgarleikhúsið og sá WOYZECK, það var ótrúleg upplifun... Öðruvísi en flest annað sem ég hef séð í leikhúsi.. Spurning hvað ég ætti að sjá í desember, verð að skella mér á eitt stykki fyrir jólin;) Verð hreinlega fyrir einhverju þegar ég fer í leikhús, held að það sé bara það skemmtilegasta sem ég geri.

Annars er lítið plan framundan, nema klipping hjá okkur mæðginunum, enda lítum við út eins og rónar um hausinn.....

Auf wiedersehen darlings

P.s fékk ekki nema ÞRJÁR töskur frá úggglandinu i þetta skiptið, svo fíkillinn er rólegur núna....


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 11:45:25 / hadda

Föstudagspistillinn

Well, well, hvað segiðið þá!!

Nú af mér er sko allt gott að frétta, brjálað að gera í vinnunni og líf mitt ansi fjörlegt á á köflum....

Síðan síðast hef ég brallað ýmislegt sem ekki verður haft eftir, vikan var skemmtileg. Hitti Mummann minn í lunch sem var ANSI gaman, er á leið á fjármálanámskeið, í leikhús á morgun, barnsfaðirinn á leið til landsins og hver veit nema ég skelli vetrardekkjunum undir í tilefni dagsins..

Svo er ekki laust við smá jólafíling... Elska Skólavörðustíginn og l

Laugarveginn á þessum tíma, sérstaklega snemma á morgnana..... Kannski maður skelli seríum í gluggana... og geri jólaglögg.. hikkkkk, skelli sér í jólaþorpið í Hafnarfirði

Langar í föt, stofuborð, íþróttaskó, húfu, kjól, ísvél, brauðvél, uppþvottavél og fleira en á ekki krónu með gati............

Ohhh alveg að koma helgi með nýbökuðu brauði og nýkreistum appelsínusafa með gulrótum og engifer............ helþí mar:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 13:16:17 / hadda

jæja

og hvernig væri svo að kvitta fyrir komu sína, 60 heimsóknir í hádeginu og ekki svo mikið sem eitt kvitt..........................................................

Þetta verður að vera samvinna;););)

Góða helgi, verið velkomin í gott kaffi í Mávahlíðina!


» 16 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 00:49:13 / hadda

Á vitlausri hillu

Horfði á Kastljósið í kvöld... Þar var ungt par með lítinn fallegan dreng sem fæddist með downs heilkenni. Þau lístu sjokkinu sem þau urðu fyrir þegar í ljós kom að drengurinn var ekki alheilbrigður. Ég veit að maður getur ekki sett sig í spor þeirra sem eiga veik börn, en mikið er maður nú heppinn.

Hinsvegar verð ég að segja að börn með downs heilkenni eru þau fallegustu. Ég veit ekki hvað það er en þegar ég sé börn sem fæðast svona fæ ég alveg verk í hnén, ég hef unnið með svona krökkum og það er eitthvað svo fallegt, innilegt og yndislegt við þau. Þau eru svo sannarlega sérstök og að mínu mati ákaflega dásamleg.

Ég myndi gjarnan vilja vinna á sambýli, það er sennilega það skemmtilegasta sem ég hef gert....

Hvað var ég að spá í að fara í viðskiptafræði8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 23:32:17 / hadda

Ha?

hahahahahahahahhahaha fokkidí fokkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkk

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 22:38:30 / hadda

Sonur minn

þetta litla krútt:

Mamma ertu búin að bíta fötin þín (alveg hissa)!! Ha mamma ertu búin að bíta? (Hann sá gat fyrir tölu á skyrtu sem ég var í í dag)

'Eg ætlaði að kúra hjá honum í dag, voða lasinn rúminu sínu. Þegar ég leggst uppí segir hann: Mamma farðu bara fram að vaska upp..... (diss eða)


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 22:10:24 / hadda

Allt að koma....

Þvotturinn samanbrotin, allt uppvaskað og hreint. Kertaljós, notalegheit og ekki má gleyma nýbakaða brauðinu sem bíður eftir mér til morguns....

Engu ólokið í vinnunni og ég nýböðuð og fín...

Fyrirgefið en er ég að ná tökum á því að vera heimavinnandi?

Annars er ekkert að frétta og þá meina ég sko EKKERT.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 16:07:30 / hadda

Veikindi dagur 4

og ég er að verða geðveik, á sjálfri mér aðallega.

Mig langar svo í ræktina uhuhuhbu, týpískt þegar maður kemst hvergi.

Annars er orðið samviskubit að fá nýtt líf hjá mér.......... endalaust. Fyrir að sinna ekki barninu og vinnunni.....................gvvuð hvað maður er klikkaður... Annars sobbbbnaði stubbur áðan svo ég gat klárað eitt verkefni af tveimur, best að klára hitt og fara svo að huga að kvöldmat...


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 17:45:52 / hadda

Akkúrat

200 dagar síðan ég drakk gosdrykk, þá á hamborgarabúllu í Borgarnesi....

Skál fyrir kókbindindi um aldur og ævi.....:|


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 11:42:20 / hadda

Vúúú

Haldið að hann Sveinn hafi ekki verið að hringja. EKKERT smá ánægð að heyra í honum maður!!

Sveinn er tæknimaður hjá Ogvodafone og er búin að laga símalínuna mína sem var vitlaust tengd. Svo nú get ég hringt og tekið við símtölum:-)

Frábært..... alveg hreint!

Annars er pilturinn enn lasinn, jeminn góður og mér finnst ekki beint eins og honum sé að batna!

Hell nóbbb

Sendið batakveðjur, en engin blóm!

H


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 19:27:08 / hadda

Heimavinnandi húsmæður

mun ég seint skilja. Ég er búin að vera heima í dag, og vá hvað ég myndi ekki geta verið heima 52 vikur á ári. Ég bara fæ seint einhverja ánægju af því að vaska upp og snyrta heimilið.... Helst myndi ég vilja borga einhverjum fyrir þetta. Eða fá auka pening um hver mánaðarmót bara fyrir að þurfa að huxa fyrir kvöldmat hvert kvöld, þvo þvott og brjóta hann saman.......... gubb

kannski væri bara best fyrir mig að búa á hóteli. Veit einhver um hóteleigenda á lausu?

;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 20:49:07 / hadda

Meðaltími 55 sek

Ætli meðaltími bloggfærslna minn sé ekki um 45-55 sekúndur. Það kannski útskýrir allar pikk villurnar og innihaldslaust og fáránlegt blogg. Ekki beint verið að vanda til verks á þessum bloggbæ:-)

Nú sit ég við eldhúsborðið hjá mér, allt í kertaljósum, barnið sofnað og falleg tónlist í græjunum. Þetta er svona akkúrat eins og þegar mér líður best. Búin að ganga frá eftir matinn. Hreini þvotturinn kominn inní skáp og líður að háttatíma.

Hreiðar Nói er lasinn, svo ég verð heima á morgun. Þess vegna hefur hluti dags farið í að tengja þráðlausa routerinn, en eins og annað hja Ogvodafone, hefur það ekki virkað............

Ltili stubbur er svo kvefaður og með hita og hálsbólgu. Hann talar eins og unglingur í stöðugum mútum!

Núbb..... Gærkvöldið, byrjaði á því að hluti vinnufélaga minna kíkti hér við og við fengum mat frá veisluþjónustu TAPAS. Ætla ekki að fjalla um hana hér. Eftir það tók við spjall og trall sem endaði svo, surprise surprise á Ölstofunni. Það var fínt svosem... Hitti þónokkra sem ég þekki og það er alltaf gaman;) Held samt að setningu kvöldsins hafi Þórólfur átt þegar hann fór að segja mér frá alveg frábærri konu sem hann hafði unnið með og minnti hann alltaf alveg rooooslega á mig! "Hún er sko alveg meiriháttar, fertug og sefur hjá 19 ára strákum" HALLELÚJA, einhver forði mér frá því þegar ég verð fertug!! Hahahah þetta var eiginlega frekar fyndið..........

Mikið var samt gott að vera á bíl og komast án nokkurra vandræða heim í rúm... Ég svaf svo fast að þegar ég vaknaði 12;12 hafði ég aldrei rumskað og var með geðveikan verk í eyranu vegna óhóflegs þrýstings á koddann!!!

Jæja, geisladiskurinn er búinn... Best að kíkka á sjónmetið eins og sonur minn segir!

Lovjú all og góða vinnuviku!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 17:34:09 / hadda

Blogg

Frá eldhúsborðinu í Mávahlíðinni. Það virkar!

Yndisleg helgi að verða búin. Selma mín á heiðurinn af því... Best að nýta rest!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 14:17:21 / hadda

Djöfulsins snilldarband

Kings Of Convenience................. sjaldan komist í annað eins góðmeti. Reyndar er ég að hlusta á Ragnheiði Gröndal og nýjasta afkvæmi hennar.... Jújú er nú svosem ekkert að míga á mig af undrun, en þetta er allgott:lol:

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 13:54:15 / hadda

Skvabbb

Mikið fallegt veður í dag! Jájá sei sei. Ég bíð eftir helginni, hin rólegasta samt. Líf mitt er með undarlega góðum takti þessa dagana.

Selman mín að koma, líkar vel að hafa svona stöðugan gestagang. Einn fer þá annar kemur:-) Yndislegt alveg...

Annar er aldrei að vita nema ég hætti mér í hverfi 101 um helgina:-) einhverjum sem langar að passa?

Best að fara að vinna, svona fyrst verkin klárast ekki að sjálfum sér!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Myndir af mér og mínum!
Dagsetning
20. mars 2010